Notkunarskilmálar

Skilmálar þessi tilgreina hvernig notendur skulu nota vefinn ættartal.is og hvaða ábyrgð þeir bera. Einnig tilgreina þeir hvaða ábyrgð rekstraraðili vefsins ber. Allir notendur þurfa að samþykkja þessa skilmála til að geta notað vefinn.

  • Notandi skal skrá sig undir réttu nafni og með réttan fæðingardag.
  • Notandi skal gæta fyllsta velsæmis í allri notkun sinni á vefnum.
  • Notandi ber fulla ábyrgð á því efni sem hann setur inn á vefinn. Efni sem hann setur inn má ekki brjóta höfundarréttarlög, má ekki vera meiðandi á nokkurn hátt, og má ekki vera vísvitandi rangt.
  • Notandi skal geta heimilda þar sem það er hægt og viðeigandi.
  • Eigandi eða ritstjórn hvers ættartals getur heimilað birtingu eða notkun efnis sem notendur setja inn. Notandi skilur að efni sem hann setur inn gæti þannig orðið sýnilegt öðrum en þeim sem hafa beinan aðgang að ættartalinu.
  • Notandi skal eingöngu nota ættartal.is til að deila upplýsingum um sínar ættir og þá sem honum tengjast.
  • Notandi má ekki nota vefinn í atvinnuskyni.
  • Starfsfólki ættartal.is er heimilt að breyta eða eyða efni ef kvörtun berst eða ef efni telst óviðeigandi á einhvern hátt.
  • Rekstraraðili ættartal.is gerir sitt besta til að tryggja öryggi gagna. Rekstraraðili er ekki bótaskyldur ef utanaðkomandi aðili kemst í gögn eða ef einhver gögn skemmast.
  • Rekstraraðili ættartal.is er ekki bótaskyldur ef notandi getur af einhverjum ástæðum ekki notað vefinn.
  • Rekstraraðili ættartal.is er ekki bótaskyldur gagnvart hvers konar tjóni eða miska sem hlýst af notkun vefsins eða af upplýsingum sem á honum birtast.
  • Rekstraraðila er heimilt að loka aðgangi að ákveðnum ættartölum eða aðgangi ákveðinna notenda eða ip-talna ef grunur leikur á að notkun viðkomandi sé ekki í samræmi við notkunarskilmála.

Rekstraraðili ættartal.is á Íslandi er fyrirtækið Vitar ehf.

f.h. ættartal.is
Brynjólfur Ómarsson
Vitar ehf