Við erum opin fyrir hvers kyns samstarfi til að efla vefinn. Ef þú hefur góða hugmynd eða vilt forvitnast um hvort við séum að leita að samstarfsaðila á einhverju sviði - hafðu þá endilega samband.

Samstarfsmöguleikar

Áttu efni sem hægt væri að tengja við einstaklinga?

Við munum fljótlega bjóða uppá að tengja myndefni eða ritaðan texta við einstaklinga sem skráðir eru á ættartal.is. Þannig gætu notendur fundið ljósmyndir af ættingjum sínum sem þeir hafa aldrei áður séð eða ritaðan texta þar sem ættingjar þeirra koma fyrir.

Ef þú átt efni sem þú telur að gæti hentað fyrir slíka tengingu, hafðu þá endilega samband.

Viltu setja upp sambærilegan vef í öðrum löndum?

Vefurinn ættartal.is er hannaður með það í huga að auðvelt sé að setja hann upp á öðrum markaðssvæðum á mismunandi tungumálum. Vefurinn er í stöðugri þróun og miklar úrbætur verða gerðar á virkni vefsins á næstunni.

Ef þú býrð erlendis eða hefur sambönd við aðila erlendis sem gætu viljað setja upp svona vef og reka hann, láttu okkur endilega vita.

Væntanlegur samstarfsaðili þarf fyrst og fremst að hafa svolítinn áhuga á ættfræði og brennandi áhuga á að byggja upp lifandi samfélag fyrir ættir síns lands. Ekki er þörf á mikilli tækniþekkingu þar sem við munum sjá um þann hluta rekstrarins.