Hægt er að skoða ýmiss konar lista á ættartal.is, svo sem yfir alla afkomendur, alla forfeður, afkomendur í stafrófsröð, afmælisdagalista og margt fleira. Fram til þessa hefur eingöngu verið hægt að skoða þessa lista á vefnum ættartal.is, en nú höfum við opnað leið til að birta listana á öðrum vefsíðum. Þannig geta notendur birt niðjatal sitt á sinni eigin heimasíðu eða bloggsíðu og listinn uppfærist sjálfkrafa um leið og nýjum upplýsingum er bætt við á ættartal.is
Nú þarf því ekki að gefa fólki beinan aðgang að ættartalinu til að sýna ákveðna hluta þess, heldur er nóg að vísa í listana af öðrum heimasíðum.
Margir hafa verið að halda handvirkt utan um þessa lista, en nú er einfalt að nota gagnagrunn ættartal.is til að geyma gögnin og birta upplýsingarnar þar sem þér hentar.
Kennslumyndband sem sýnir hvernig þetta er gert má finna hérna.