Fréttir af ættingjum gera ættartalið lifandi og skemmtilegt. Ef þú veist um fréttnæman atburð, giftingu, barneignir, ættarmót eða eitthvað annað skemmtilegt sem þú vilt deila með ættingjunum - skrifaðu þá endilega frétt. Fréttin mun birtast á heimili ættarinnar á netinu - ættartal.is

Til baka

Að opna aðgang fyrir almenning

Í gær settum við í loftið nokkrar nýjungar.

  • Hægt að skrá kontakt upplýsingar einstaklinga, svo sem heimilisfang, símanúmer og netfang.
  • Hægt að skrá tengla á vefsíður sem tengjast einstaklingum.  Þannig mætti til dæmis skrá tengil yfir á síðu barns á barnalandi eða síðu á fyrirtæki í eigu einstaklings.
  • Nú er hægt að stjórna aðgengi opinna ættartala á einfaldari hátt (sjá hér að neðan).

Stærsta breytingin var sú að nú geta eigendur og ritstjórar ættartals stjórnað því hversu opið ættartalið er fyrir óskráða notendur. Þannig er hægt að opna ættartalið algerlega fyrir óskráðum notendum svo þeir geti skoðað allar upplýsingar. Hægt er að loka fyrir myndaalbúm, loka fyrir prófílmyndir, sögur, lista eða mannlýsingar. Þessu aðgengi er stjórnað af síðunni "Stilla aðgengi" sem birtist í vinstri valmyndinni á heimili ættarinnar.

Með þessu móti geta ritstjórar opnað fyrir almennar og hálfopinberar upplýsingar um ættina, en haldið myndaalbúmum, sögum eða öðrum persónulegri hlutum lokuðum.