Fréttir af ættingjum gera ættartalið lifandi og skemmtilegt. Ef þú veist um fréttnæman atburð, giftingu, barneignir, ættarmót eða eitthvað annað skemmtilegt sem þú vilt deila með ættingjunum - skrifaðu þá endilega frétt. Fréttin mun birtast á heimili ættarinnar á netinu - ættartal.is

Til baka

Menntun, starf og barnsforeldrar. Leitin lagfærð

Nú er hægt að skrá menntun og starf einstaklinga. Þegar notandi er á síðu einstaklings, þá birtast valmöguleikar í vinstri valmyndinni sem kallast "Menntun" og "Starfsferill". Þar er hægt að skrá menntun og störf og sjá lista.

Helstu breytingar  í dag voru þessar:

  • Hægt að skrá menntun og starf einstaklinga
  • Á síðu einstaklings birtast barnsforeldrar nú fyrir neðan maka. Nokkrir notendur höfðu óskað eftir þessu og við ákváðum því að setja þessar upplýsingar á síðuna.
  • Þegar barn er skráð er núna hægt að velja hitt foreldrið úr lista. Í listanum birtast allir makar og barnsforeldrar föðurins eða móðurinnar. Að sjálfsögðu er líka hægt að sleppa því að skrá hitt foreldrið strax.
  • Leitin og flýtileitin hafa verið í einhverju ólagi síðustu daga, en nú er búið að kippa því í liðinn.
  • Útlitið á síðunni sem notendur fá þegar þeir samþykkja aðgangsboð að ættartali var lagfært.
  • Notandi sem fengið hefur aðgangsboð, getur nú skipt um tungumál án þess að missa út þær upplýsingar sem þegar voru skráðar.
  • Ef notendur eru með tvo vafra opna og með mismunandi ættartöl opin í hvorum glugganum, þá er ekki lengur hætta á að einstaklingur skráist inn í rangt ættartal.

Í næstu viku vonumst við til að geta opnað fyrir innlestur á Gedcom skrám þannig að notendur geti sjálfir lesið þær inn.