Fréttir af ættingjum gera ættartalið lifandi og skemmtilegt. Ef þú veist um fréttnæman atburð, giftingu, barneignir, ættarmót eða eitthvað annað skemmtilegt sem þú vilt deila með ættingjunum - skrifaðu þá endilega frétt. Fréttin mun birtast á heimili ættarinnar á netinu - ættartal.is

Til baka

Sturlungaætt

Sturlungaættin var valdamesta ætt á Íslandi á fyrri hluta 13. aldar og er sá tími gjarnan nefndur Sturlungaöld. Frægastur Sturlunga er að sjálfsögðu Snorri Sturluson í Reykholti.

Við settum ættartal Sturlunga á vefinn í morgun þar sem við skráðum inn Þórð Sturluson og afkomendur hans í þrjá ættliði. Við settum eingöngu inn grunnupplýsingar um hvern og einn, og sums staðar vantar maka eða fæðingar- og dánardag. Við viljum því óska eftir einhverjum sjálfboðaliðum til að taka að sér ritstjórn á þessu ættartali og setja inn ítarlegri upplýsingar, og jafnvel sögur.

Bein slóð á Sturlungaættina er www.aettartal.is/heim/Sturlungar. Ættartalið er að sjálfsögðu opið þannig að allir geta skoðað það.

Við vonumst til að geta á næstunni sett inn fleiri af frægustu ættum Íslandssögunnar og þurfum því aðstoð fróðra manna til að vinna það verk. Ef þú hefur áhuga á að hjálpa, sendu okkur þá endilega línu.