Við höfum nú endurhannað myndahlutann alveg frá grunni. Nú geta notendur búið til myndaalbúm og flokkað þannig myndir ættartalsins. Allt útlit í myndahlutanum hefur verið tekið í gegn og er nú mun notendavænna en áður.
Þær myndir sem voru nú þegar komnar á vefinn eru að sjálfsögðu á sínum stað, en við bjuggum til eitt albúm fyrir hvert ættartal og settum allar gamlar myndir þangað. Notendur geta fært myndirnar úr þessu albúmi síðar ef þeir vilja endurskipuleggja albúmin sín.
Allir ritstjórar og eigendur geta bætt við og breytt myndaalbúmum í hverju ættartali.
Ef þið lendið í einhverjum vandræðum með myndahlutann, sendið okkur þá línu. Við eigum eftir að gera smávægilegar breytingar á honum á næstu dögum.
Nokkur smáatriði til viðbótar:
- Nú er hægt að breyta eldri fréttum.
- Villa sem birtist hjá einstaka notendum í grafíska ættartrénu var löguð.
- Dánardagur þarf nú að vera á eftir fæðingardegi þegar nýr einstaklingur er skráður.
- Hægt er að eyða út öllum tengingum við sveitarfélög.
- Taflan yfir réttindi notenda var uppfærð.