Hjálp
Aðgangsréttindi
Hægt er að hafa ferns konar mismunandi aðgangsréttindi að ættartali.
- Eigandi
- Ritstjóri
- Vinur
- Gestur
Réttindin eru ákvörðuð þegar viðkomandi notanda er boðinn aðgangur að ættartalinu. Þeir sem hafa réttindi eiganda eða ritstjóra geta boðið öðrum notendum aðgang og þá ákveðið hvaða réttindi þeir fá.
Smelltu hér til að lesa nánar um mismunandi réttindi.
Að stofna nýtt ættartal
Til að stofna nýtt ættartal smellirðu fyrst á “Mitt ættartal” á appelsínugula borðanum efst á síðunni. Þar smellirðu svo á “Stofna nýtt ættartal” neðst á síðunni. Því næst gefurðu ættartalinu heiti og skrifar stutta lýsingu á því.
Þá er komið að því að skrá fyrsta einstaklinginn í ættartalið. Ef þú ert að búa til ættartal fyrir þig og forfeður þína þá byrjar þú á að skrá upplýsingar um sjálfan þig. Ef þú ert hins vegar að búa til ættartal fyrir afkomendur afa þíns og ömmu, eða langafa og langömmu, þá er best að skrá annaðhvort þeirra fyrst.
Að skrá einstaklinga í ættartalið
Þegar þú hefur stofnað ættartal þá er komið að því að skrá einstaklinga í ættartalið. Þú verður alltaf að vinna þig út frá núverandi einstaklingum, þannig að þú skráir barn, maka eða foreldra þeirra einstaklinga sem eru þegar í ættartalinu.
Ef þú þarft að skrá mörg börn sömu foreldra, þá er best að skrá foreldrana báða inn fyrst, og skrá þá sem maka. Því næst skráirðu barn frá öðru hvoru foreldranna og hakar við reitinn þar sem spurt er hvort makinn sé hitt foreldrið.
Breyta maka
Hver einstaklingur getur aðeins haft einn maka hverju sinni. Ef þú ert að skrá afkomendur einstaklings, þá spyr vefurinn þig hvort maki þess einstaklings sé hitt foreldrið. Því getur verið hentugt að skrá maka einstaklings áður en þú skráir börn þeirra.
Með því að smella á "Fjarlægja maka" þá eyðirðu makatengslum viðkomandi einstaklinga, en þú eyðir hvorugum makanum.
Fjarlægja einstaklinga úr ættartalinu
Til að fjarlægja einstakling ferðu á síðuna hans og smellir á "Eyða" hnappinn. Ekki er hægt að eyða einstaklingum sem eiga börn eða foreldra sem þar með myndu missa tengsl við aðra ætttingja.
Að skrá fréttir
Ritstjóri og eigandi ættartals getur skráð fréttir sem tengjast ættinni. Fréttirnar munu þá birtast á heimili ættarinnar.
Til að skrá frétt, velurðu “Skrá nýja frétt” á síðunni “Heimili ættarinnar”.
Að bjóða aðgang
Ein mikilvægasta aðgerðin á vefnum er að bjóða öðrum notendum aðgang að ættartalinu. Með því geta aðrir skoðað þær upplýsingar sem þú hefur skráð og þeir geta einnig skráð þær upplýsingar sem þeir hafa, sett inn myndir og fleira. Með því að bjóða fleirum aðgang að ættartalinu geturðu búið til lifandi heimili ættarinnar á netinu.
Til að bjóða notendum aðgang, smellirðu á “Bjóða aðgang” sem er á vinstri valmyndinni á síðunni. Þar geturðu svo skráð inn tölvupóstföng og nöfn þeirra sem þú vilt bjóða, auk þess að skrifa persónuleg skilaboð til þeirra. Þeir munu svo fá sendan tölvupóst frá ættartal.is þar sem þeir geta þegið boðið.
Þegar þú býður einhverjum aðgang, þá þarftu að ákveða hvaða réttindi viðkomandi á að hafa í ættartalinu. Réttindin eru ferns konar – eigandi, ristjóri, vinur eða gestur. Hægt er að lesa um mismunandi réttindi þessara hópa hér.
Að búa til aðgangskóða
Hægt er að setja upp aðgangskóða fyrir ættartal. Þar með geta aðrir notendur fengið aðgang að ættartalinu án þess að þú bjóðir þeim það sérstaklega á vefnum. Það eina sem þú þarft þá að gera er að senda þeim slóðina á heimasíðu ættarinnar og gefa þeim upp aðgangskóðann.
Til að búa til aðgangskóða fyrir ættartalið ferðu á síðuna "Mitt ættartal", smellir á "Breyta" hnappinn við ættartalið. Svo skráirðu inn aðgangskóða í viðkomandi reit og vistar.
Á "Mitt ættartal" sérðu beina slóð á ættartalið þitt (hægra megin við forsíðumyndina. Þú getur sent þessa slóð á vini eða ættingja ásamt aðgangskóðanum, og þá fá þeir réttindi til að skoða ættartalið þitt.