Spurt og svarað
Hvað er ættartal.is?
Ættartal.is er vefur sem gerir notendum kleift að skrá upplýsingar um sig
og sína ættingja og búa til sitt eigið ættartal. Einnig er hægt að bjóða öðrum einstaklingum
aðgang að ættartalinu og þeir geta einnig skráð inn upplýsingar. Hægt er að setja
inn upplýsingar um fæðingardag, dánardag, hægt að setja inn myndir af einstaklingum
og skrifa sögur eða greinar. Á næstu vikum munum við bæta við enn fleiri notkunarmöguleikum.
Ættartal.is á því að geta orðið lifandi samfélag ættarinnar á netinu.
Get ég skoðað mörg ættartöl eða bara eitt?
Þú getur skoðað mörg ættartöl. Íslendingar eru ættrækin þjóð og flestir telja sig
meðlimi í tveimur eða fleiri ættum og mæta reglulega á ættarmót. Það eru því engin
takmörk á því hversu mörg ættartöl þú getur skoðað. Þú getur búið til þín eigin
ættartöl og þú getur líka fengið aðgang að ættartölum sem aðrir hafa búið til.
Get ég breytt upplýsingum í öllum ættartölum sem ég hef aðgang
að?
Þú getur haft mismikil réttindi í hverju ættartali. Í einu ættartali getur þú verið
stofnandi ættartalsins og þá hefurðu fullan rétt til að breyta öllum upplýsingum.
Í öðru ættartali getur þú verið gestur og þá geturðu eingöngu skoðað upplýsingar.
Sá sem býður þér aðgang að ættartali ákveður hvaða réttindi þú færð.
Hverjir geta séð upplýsingarnar sem eru skráðar?
Enginn getur séð myndir, sögur eða aðrar upplýsingar um einstaklinga nema þeir sem
hafa aðgang að þínu ættartali. Allir geta hins vegar leitað eftir nafni einstaklinga
til að sjá í hvaða ættartölum þeir eru. Þeir sjá þó ekki meiri upplýsingar en nafn,
fæðingardag og dánardag nema hafa aðgang að viðkomandi ættartali.
Get ég leitað að upplýsingum um forfeður mína?
Einu upplýsingarnar í þínu ættartali eru þær sem þú skráir inn sjálfur. Ef þú vilt
skrá upplýsingar um forfeður þína, þá þarftu að finna þær annars staðar og skrá
sjálfur inn á ættartal.is. Við munum tengjast utanaðkomandi gagnagrunnum innan tíðar
og þá verður hægt að leita að forfeðrum þar. Hugsanlegt er að við bætum við þeim
möguleika að geta leitað í utanaðkomandi gagnagrunnum síðar.
Þarf ég að skrá mig undir fullu nafni?
Vegna eðlis þeirra upplýsinga sem unnið er með á vefnum, viljum við að allir notendur
skrái sig undir réttu nafni.
Get ég leitað að ættingjum í ættartölum annarra?
Við munum bjóða uppá slíka leit í öðrum ættartaölum síðar í sumar. Eigandi hvers
ættartals verður að heimila slíka leit í ættartalinu.
Á hvaða tungumálum er vefurinn til?
Í dag er vefurinn aðeins til á íslensku og ensku. Við munum opna sambærilega vefi
í öðrum löndum og þá á öðrum tungumálum.
Hvernig skrái ég mig sem notanda?
Á appelsínugula borðanum hér efst á síðunni er hnappur sem á stendur “Nýskráning”.
Smelltu þar og fylgdu leiðbeiningunum sem birtast.
Nú er sami einstaklingurinn skráður tvisvar í ættartalið og ég get ekki eytt honum. Hvað get ég gert?
Ef þú getur ekki eytt út einstaklingnum, eða ert ekki viss um hvað á að gera, þá skaltu senda okkur póst á admin(hjá)aettartal.is. Við skulum skoða ættartalið þitt og aðstoða þig við að lagfæra það.
Ég fékk sendan aðgangskóða. Hvað á ég að gera við hann?
Ef þú hefur fengið aðgangskóða að ættartali, þá hefurðu sennilega líkað fengið senda slóð á heimasíðu ættartalsins. Þú ferð á slóðina í vafranum þínum og á síðunni sem þá opnast geturðu skráð inn aðgangskóðann. Þar með ertu kominn með aðgang að ættartalinu sem Gestur.
Ef þú ert ekki skráður notandi á ættartal.is, þá þarftu fyrst að skrá þig sem notanda.
Ef þú hefur ekki fengið slóð á heimasíðu ættartalsins, þá geturðu farið í "Leita" hér efst á síðunni, valið að leita eftir ættartali og slegið inn heiti þess. Þá færðu upp öll ættartöl sem passa við leitarskilyrðin og getur smellt þar til að komast á heimasíðu ættarinnar.