|
Ef þú vilt vita meira um ættartal.is eða Vita ehf, þá er þér velkomið að senda okkur tölvupóst. |
Um ættartal.is
Vefurinn ættartal.is er í eigu Vita ehf. Vefurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á ættfræði og að fylgjast með því sem er að gerast í sinni ætt. Við vonum að vefurinn hjálpi til við að styrkja tengsl innan ættarinnar og að auki þekkingu notenda á sögu sinni og sinna nánustu.
Við stefnum að því hafa sem mest á vefnum ókeypis. Þó er hugsanlegt að hægt verði að greiða ákveðið gjald fyrir aukna notkunarmöguleika. Einnig verður í framtíðinni boðið upp á aðstoð við gerð bóka eða dagatala með ættfræðiupplýsingum, svo sem fyrir ættarmót.
Vefurinn er í stöðugri þróun og við viljum gjarnan heyra í notendum ef þeir hafa einhverjar athugasemdir eða tillögur að nýjum möguleikum á vefnum.
Brynjólfur Ómarsson
Vitar ehf - ættartal.is